Aðrar ráðstefnur

Innanlands

Yfirlit
Bókakaffi
Gerðubergs-ráðstefna
Aðrar ráðstefnur
Barnabóka-verðlaun
  Yfirlit
  INNANLANDS
  Sögusteinn
  Vorvindar
  Íslensku barnabóka-verðlaunin
  ALÞJÓÐLEG
  Heiðurslisti IBBY
  H.C. Andersen verðlaunin

Verðlaun: Sögusteinn

Með barnabókaverðlaununum Sögusteini rætist gamall draumur stjórnar IBBY á Íslandi. Í samstarfi við Glitni var félaginu kleift að heiðra á verðugan hátt rithöfund, myndskreyti eða þýðanda sem hefur auðgað íslenska barnabókaflóru. Verðlaunaféð er 500.000 kr. en að auki fær verðlaunahafinn verðlaunagrip til eignar.

Um sögustein segir svo í þjóðsögum Jóns Árnasonar: „Sögusteinn finnst í maríuerluhreiðri í maí. Skal maður bera hann á sér í blóðugum hálsklút og láta hann í hægra eyra þegar maður vill verða einhvers vísari af honum; segir hann þá allt sem maður vill vita.“


Frú Vigdís finnbogadóttir og Kristín Helga Gunnarsdóttir

Sögusteinninn 2009: Kristín Helga Gunnarsdóttir

FRÉTTATILKYNNING:
Sögusteinn, barnabókaverðlaun IBBY á Íslandi, voru afhent í þriðja sinn í þann 2. apríl,  á alþjóðlegum degi barnabókarinnar. Upphæð verðlaunanna er 500 þúsund krónur en þau eru veitt rithöfundi, myndlistarmanni eða þýðanda sem með höfundarverki sínu hefur auðgað íslenskar barnabókmenntir.

Var það einróma álit valnefndar, sem skipuð er Önnu Heiðu Pálsdóttur, bókmenntafræðingi, Ármanni Jakobssyni, bókmenntafræðingi og Rögnu Sigurðardóttur, myndlistarkonu og rithöfundi, að Kristín Helga Gunnarsdóttir skyldi hljóta verðlaunin að þessu sinni. Í greinargerð valnefndar segir meðal annars:

„Á þessum tólf árum sem rithöfundarferill Kristínar Helgu spannar hefur hún skrifað hátt á annan tug bóka, að minnsta kosti eina á ári og stundum tvær. Oft hafa mikil afköst vera talin skerða gæðin: að rithöfundur gefi sér ekki tíma til að vanda til verka. Kristín Helga hefur margsannað að það er bara goðsögn.
            Binna, Hekla, Mói hrekkjusvín, Silfurberg-þríburarnir, og síðast en ekki síst Fíasól, eru persónur sem barnið í okkar húsi og barnabarnið í næsta húsi hafa alist upp með, svipað og eldri kynslóðin á Íslandi í dag ólst upp með Línu Langsokk og Önnu í Grænuhlíð. Mjög sennilega munu þau tala um Fíusól með sérstakan glampa í augunum eftir tíu, tuttugu eða þrjátíu ár. Í Fíusól hefur Kristín Helga skapað persónu sem er íslensk, sjálfstæð, skapandi og frumleg en um leið afar trúverðug.
            Undirliggjandi boðskapur bóka Kristínar Helgu er krafa um að hugsa sjálfstætt og að vera góð og heilsteypt manneskja, en þessi boðskapur kemur hvergi fram á of opinskáan hátt. Kristín Helga hefur eingöngu skrifað barnabækur og hún hefur sannað að góður barnabókahöfundur getur skipað sér í fremstu röð íslenskra rithöfunda.“

Frú Vigdís Finnbogadóttir afhenti Kristínu Helgu verðlaunin við athöfn sem haldin var á vegum IBBY og Borgarbókasafnsins í Grófarsal, á 6. hæð í Grófarhúsinu við Tryggvagötu. Auk verðlaunafjárins hlaut Kristín Helga til eignar fallegan verðlaunagrip sem hannaður var af Önnu Þóru Árnadóttur, grafískum hönnuði. Aðrir handhafar Sögusteins eru Sigrún Eldjárn og Kristín Steinsdóttir.

 


 

Sögusteinninn 2008: Kristín Steinsdóttir

FRÉTTATILKYNNING:
Sögusteinn, barnabókaverðlaun IBBY á Íslandi og Glitnis, voru afhent í annað sinn á alþjóðlegum degi barnabókarinnar 2. apríl 2008. Upphæð verðlaunanna er 500.000 kr. en þau eru veitt rithöfundi, myndlistarmanni eða þýðanda sem með höfundarverki sínu hefur auðgað íslenskar barnabókmenntir.

Var það einróma álit valnefndar, sem skipuð var Önnu Heiðu Pálsdóttur, bókmenntafræðingi, Ármanni Jakobssyni, bókmenntafræðingi og Rögnu Sigurðardóttur, myndlistarkonu og rithöfundi, að Kristín Steinsdóttir skyldi hljóta verðlaunin að þessu sinni. Í greinargerð valnefndar segir meðal annars:

„Kristín Steinsdóttir hefur verið einn af afkastamestu barnabókahöfundum þjóðarinnar í tvo áratugi og bækur hennar hafa notið mikillar hylli bæði lesenda og gagnrýnenda. Hún sló í gegn strax í upphafi með bókinni Franskbrauð með sultu (1987) og hefur síðan sent frá sér margar sterkar bækur. Hún hefur þar að auki verið að sækja stöðugt í sig veðrið sem höfundur og margir telja að hún hafi samið sín allra bestu verk á þessum áratug, þar á meðal hina margverðlaunuðu Engil í Vesturbænum (2002).

Efnisval Kristínar hefur verið mjög fjölbreytt, sumar sögur hennar hafa verið ævintýra- og gamansögur en aðrar raunsæissögur með sterkum samfélagslegum undirtón. Hún hefur sótt efni í eigin uppvöxt, Íslandssöguna, íslenska þjóðtrú og síðast en ekki síst hefur hún jafnan lagt sérstaka rækt við að miðla sérstakri skynjun barnsins á umhverfi sínu. Með skrifum sínum hefur í senn hún lyft íslenskum barnabókmenntum og vakið athygli umheimsins á þeim. En ekki er þó minnst um vert að íslensk börn hafa bæði menntast og glaðst yfir bókum hennar um tveggja áratuga skeið.”

Frú Vigdís Finnbogadóttir afhenti Kristínu verðlaunin við hátíðlega athöfn sem haldin var á vegum IBBY og Borgarbókasafnsins. Auk verðlaunafjárins fékk Kristín til eignar fallegan verðlaunagrip sem hannaður var af Önnu Þóru Árnadóttur, grafískum hönnuði, sem einnig hannaði merki Sögusteinsins.


Sögusteinninn 2007 - Sigrún Eldjárn

Sögusteinninn 2007: Sigrún Eldjárn

FRÉTTATILKYNNING:
Sögusteinn, ný barnabókaverðlaun IBBY á Íslandi og Glitnis, voru afhent í fyrsta sinn á alþjóðlegum degi barnabókarinnar 2. apríl 2007. Upphæð verðlaunanna er 500.000 kr. en þau eru veitt rithöfundi, myndlistarmanni eða þýðanda sem með höfundarverki sínu hefur auðgað íslenska barnabókmenntir.

Var það einróma álit valnefndar, sem skipuð var Önnu Heiðu Pálsdóttur, bókmenntafræðingi, Ármanni Jakobssyni, bókmenntafræðingi og Rögnu Sigurðardóttur, myndlistarkonu og rithöfundi, að Sigrún Eldjárn skyldi hljóta verðlaunin að þessu sinni.

Í greinargerð valnefndar segir meðal annars:

„Framlag Sigrúnar til íslenskra barnabókmennta liggur jafnt í hennar eigin textum og myndlýsingum við þá, sem og myndlýsingum við texta annarra höfunda. Bækur hennar, sem nálgast bráðum fjórða tuginn, um brjálaða vísindamenn, geimeðluegg og geðilla kirkjuverði, skilja eftir sig lifandi myndir sem börn kalla auðveldlega fram í huganum og börnin vísa jafnvel til Tímóteusar, Teits og geimeðal sem raunverulegra persóna og fyrirbæra.

Sigrúnu hefur tekist vel að tengja íslenskar þjóðsögur og ævintýri við sígilda, alþjóðlega sagnagerð og jafnvel vísindafantasíur og hrollvekjur. Hún hefur aldrei óttast að leita þangað sem aðrir ekki þora, í leit að nýjum landamærum og kynnt til sögunnar fyrirbrigði sem eiga sér ekki augljósa rót í raunveruleikanum. Þó hafa hlutirnir einhvern veginn þróast þannig að raunveruleikinn nálgast smám saman hugmyndir Sigrúnar, á skjön við það sem almennt þekkist. Þegar Sigrún hafði áunnið sér sess meðal yngri lesenda með platsögum og drullumalli, beinagrindum og tímaflökkurum, kynnti hún til sögunnar litla, feita bók fyrir aðeins eldri börn sem bar titilinn Týndu augun. Í kjölfarið fylgdu tvær aðrar feitar og freistandi bækur sem tryggðu Sigrúnu endanlega sess í fremsta flokki íslenskra barnabókahöfunda.”

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra afhenti Sigrúnu verðlaunin við hátíðlega athöfn sem haldin var á vegum IBBY og Borgarbókasafnsins að viðstöddu fjölmenni. Auk verðlaunafjárins fékk Sigrún til eignar fallegan verðlaunagrip sem hannaður var af Önnu Þóru Árnadóttur, grafískum hönnuði, sem einnig hannaði merki Sögusteinsins.

Sigrún Eldjárn




 

 

IBBY á Íslandi - Vefmeistari: Anna Heiða Pálsdóttir