H.C. Andersen verðl.

Alþjóðlegt

  Yfirlit
  Norrænt samstarf
  Nordisk blad
  H.C. Andersen verðlaunin
  Heiðurslisti IBBY
  Astrid Lindgren verðlaunin

Heiðurslisti IBBY-samtakanna

Landsdeildunum gefst tækifæri til að tilnefna á heiðurslista IBBY samtakanna í tengslum við heimsþing alþjóðasamtakanna þrjár bækur og heiðra þannig rithöfund, myndlistarmann og þýðanda.

Heiðurslisti IBBY-samtakanna er víðtækasti og áhrifamesti þátturinn í því starfi IBBY-samtakanna að stuðla að alþjóðlegum skilningi með hjálp barnabóka.

Landsdeildirnar tilnefna sem sagt eina bók í hverjum flokki. Í löndum þar sem fleiri en eitt tungumál eru töluð má tilnefna allt að þrjár bækur fyrir rithöfund og þýðanda á hverju hinna opinberu tungumála.

Mikilvægur þáttur í vali bóka á heiðurslistann er að þær standi fyrir það besta sem barnabókmenntir tilgreinds lands hafa upp á að bjóða og að bókin henti til útgáfu hvar sem er í heiminum. Heiðurslisti IBBY veitir innsýn í hin ólíka menningarlega, stjórnmálalega og þjóðfélagslega bakgrunn sem börn um allan heim lifa og þrífast í, og veitir þeim innsýn sem vinna við að þróa menntun barna og veita þeim „alþjóðlega“ yfirsýn.

Viðurkenningarskjöl vegna heiðurslistans eru afhent á Alþjóðlegu þingi IBBY, þar sem bæklingur með tilnefndum bókum er kynntur í fyrsta sinn. Eftir þessa kynningu fara sjö sett af bókunum á ferðalag um heiminn og eru sýnd á ráðstefnum og alþjóðlegum bókasýningum. Eftir það eru bækurnar geymdar í alþjóðlega barnabókasafninu í München („International Youth Library in Munich“), „Swiss Institute for Child and Youth Media“ í Zurich og „Bibiana Research Collection“ í Bratislava.

Allar landsdeildirnar frá listann sendan í pósti.

Eftirfarandi verk hafa verið tilnefnd af hálfu IBBY á Íslandi:

2012
Höfundur Vala Þórsdóttir og Agnieszka Nowak fyrir bókina Þankaganga – Myslobieg
Myndlistarmaður Kristín Arngrímsdótti fyrir bókina Arngrímur apaskott og hrafninn
Þýðandi Guðmundur Andri Thorsson fyrir þýðingu á Húsinu á bangsahorni eftir A. A. Milne
2010
Höfundur  
Myndlistarmaður  
Þýðandi  
2008
Höfundur Sigrún Eldjárn fyrir skáldsögu sína Steinhjartað
Myndlistarmaður Halla Sólveig Þorgeirsdóttir myndlistarmaður fyrir bókina Hver étur ísbirni?
Þýðandi Rúnar Helgi Vignisson fyrir þýðingu á Silfurvæng eftir Kenneth Oppel
2006
Höfundur Gunnhildur Hrólfsdóttir fyrir skáldsögu sína Ránið
Myndlistarmaður Brian Pilkington myndlistarmaður fyrir bókina Dynkur
Þýðandi Hilmar Hilmarsson fyrir þýðingu á Dóttur ávítarans eftir Lene Kaaberbøl.
2004
Höfundur Kristín Steinsdóttir fyrir Engill í Vesturbænum
Myndlistarmaður Áslaug Jónsdóttir fyrir Krakkakvæði eftir Böðvar Guðmundsson
Þýðandi Guðni Kolbeinsson fyrir Artemis Fowl
2002
Höfundur Þorvaldur Þorsteinsson - Ert þú Blíðfinnur? Ég er með mikilvæg skilaboð.
Myndlistarmaður Áslaug Jónsdóttir - Sagan af bláa hnettinum
Þýðandi Sigrún A. Eiríksdóttir - Sannleikann eða áhættuna eftir Annika Thor
2000
Höfundur Elías Snæland - Návígi á hvalaslóð
Myndlistarmaður Sigrún Eldjárn - Málfríður og tölvuskrímslið
Þýðandi: Kristín Thorlacius - Indíáninn í skápnum eftir Lynn Reid Banks
1998
Höfundur Olga Guðrún Árnadóttir - Peð á plánetunni jörð
Myndlistarmaður Guðrún Hannesdóttir - Risinn þjófótti og skyrfjallið
Þýðandi Sigrún Árnadóttir - Ég sakna þín eftir Peter Pohl og Kinna Gieth
1992
Höfundur Iðunn Steinsdóttir - Gegnum þyrnigerðið

Sýningar eru settar upp með þeim bókum sem tilnefndar eru til H. C. Andersen verðlaunanna og sömuleiðis heiðurslistabókunum. Þær eru á Barnabókamessunni í Bologna, á Heimsþingi IBBY samtakanna og fara svo yfirleitt sem farandsýningar til fleiri landa. Landsdeildirnar þurfa að greiða allhátt tilnefningagjald með bókunum sem lagðar eru fram og getur það verið litlum deildum töluverð blóðtaka. Á hinn bóginn hefur þetta reynst afbragðskynning og stuðlað að auknum þýðingum og útgáfu viðkomandi bóka í öðrum löndum.

Alþjóðlegi heiðurslistinn
Sjá listann yfir tilnefndar bækur á heiðurslistann 2002 á þessari síðu.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 




 

 

IBBY á Íslandi