Aðrar ráðstefnur

Innanlands

Yfirlit
Bókakaffi
Gerðubergs-ráðstefna
Aðrar ráðstefnur
Barnamenningar-stofnun
Barnabóka-verðlaun
  Yfirlit
  INNANLANDS
  Vorvindar
  Íslensku barnabóka-verðlaunin
  Barnabóka-verðlaun Reykjavíkur
  Bókaverðlaun barnanna (BBS)
  ALÞJÓÐLEG
  Heiðurslisti IBBY
  H.C. Andersen verðlaunin
  IBBY ASAHI verðlaunin
  Astrid Lindgren verðlaunin

 

IBBY-ASAHI VERÐLAUNIN

TIL HVATNINGAR VERKEFNUM SEM AUKA LESTRARÁHUGA BARNA

IBBY-Asahi verðlaunin voru stofnuð í Japan árið 1986 til að minnast 20. heimsþings IBBY-samtakanna sem haldið var í Tokyo.

Verðlaunin eru veitt árlega, stofnun eða hópi sem með einstöku framtaki leggur sitt af mörkum til útbreiðslu bókmenningar. Þau eru veitt fyrir tiltekið verkefni á vegum grasrótasamtaka en ekki hins opinbera í viðkomandi landi.

Verkefnið sem tilnefnt er miði að því að ná til fólks sem aðstæðna vegna á í erfiðleikum með að nálgast eða tileinka sér lesefni. Tilnefningarnar eru ekki bundnar við framtak í heimalandi landsdeildana og eru þeim að kostnaðarlausu. IBBY-deildirnar mega tilnefna verkefni utan heimalands síns.

Í dómnefnd sitja félagar í yfirstjórn IBBY (IBBY Executive Committee) sem velur vinningshafa á árlegum fundi stjórnarinnar í október. Verðlaunin eru 10.000 USD og vinningshafinn fær verðlaunaskjal á bókasýningunni í Bologna í apríl.

Verðlaunahafar frá 1988-2004 eru þessir:

2004 First Words in Print (PDF 92 KB) (South Africa)
2003 Sister Libraries (Bolivia)
2002 Por el derecho a leer/For the right to read (Argentina)
2001 Children's Reading Development Programme in the Pechenga District 1992-2002 (Russia)
2000 Tambogrande - Sowing a Reading Field (Peru)
1999 Library on Wheels for Nonviolence and Peace (Palestine)
1998 Fureai Bunko Braille Library (Japan)
1997 Lis avec moi! (France)
1996 The Little Library (South Africa)
1995 Fundalectura (Colombia)
1994 Portable Library Project (Lebanon)
1993 Grupo de Animación a la Lectura (Spain)
1992 Opération Lecture Publique (Mali)
1991 AWIC Children's Library Project (India)
1990 Home Libraries Project (Zimbabwe)
1989 Portable Library Project (Thailand)
1988 Banco del Libro (Venezuela)

 

 

 

 

 

 

 
 

 

IBBY á Íslandi - Vefmeistari: Anna Heiða Pálsdóttir