Útgáfa

  Yfirlit
  Tímaritið Börn og menning
  Bókaútgáfa
  Dagatal
  Annað

(Engin eldri tbl. á þessum vefsíðum) - YFIRLIT - Næsta tölublað

Börn og menning 1997 (12. árgangur)

Ritstjóri: Kristín Birgisdóttir

Fulltrúar í ritnefnd: Guðlaug Richter og Guðrún Hannesdóttir

Kristín Birgisdóttir
„Hvað höfum við svo hér?“ – pistill ritstjóra (bls. 2)
Kristín fjallar um hið nýja blað IBBY-samtakanna, Börn og menning, sem kemur út í stóru og fallegu broti fyrir tilstuðlan myndarlegs styrks frá Menntamálaráðuneytinu. Efni blaðsins að þessu sinni er barnamenning og hvernig hægt sé að hlúa að þessu sviði menningarinnar börnum í hag. Hún nefnir skipulag hins nýja blaðs sem mun verða í nokkuð föstum skorðum.

Iðunn Steinsdóttir
„IBBY samtökin “ (bls. 3-4)
Iðunn ræðir um tilgang og markmið samtakanna og gerir grein fyrir Íslandsdeild IBBY og störfum þeirrar deildar.

IBBY fréttir (bls. 5)
Þar er getið um H.C.Andersen verðlaunin og IBBY – Asahi verðlaunin. Einnig er talað um IBBY deildirnar á Norðurlöndunum og norræna IBBY ráðstefnu á Álandseyjum.

Ragnheiður H. Þórarinsdóttir, Menntamálaráðuneytinu
„Norræn framtíð“(bls. 6)
Ragnheiður ræðir um stjórnarnefnd sem hefur með höndum samstarf um norræna barna- og unglingamenningu (skammstafað BUK) og starf nefndarinnar.

Vigdís Finnbogadóttir
„Barnamenning“(bls. 7)
Vigdís ræðir í grein sinni vítt og breitt um barnamenningu og hvað hefur áunnist á undanförnum árum.

Tíðindi (bls. 8-9)
Fréttir um starfsemi sem tengist börnum og barnamenningu.

„Til hamingju! “(bls. 10)
Hér er sagt frá verðlaunaveitingum á árinu og nýútkominni bók í Svíþjóð sem fjallar um Astrid Lindgren og verk hennar.

Guðrún Helgadóttir
„Mér finnst ...“ (bls. 11)
Guðrún fjallar um vanda þeirra sem semja bækur fyrir börn og vá þá sem steðjar að börnum og bókum vegna aðstreymis annarra fjölmiðla.

Guðrún Hannesóttir
„Næsta bók er alltaf sú besta... viðtal við Brian Pilkington“(bls. 12-16)
Hér fær lesandi yfirlit yfir ævi, menntun og störf Brians Pilkingtons, eins af okkar ástkæru myndskreytum. Í lok viðtalsins er listi yfir þær bækur sem Brian hefur komið nálægt. Viðtalið tók Guðrún Hannesdóttir.

Kristín Viðarsdóttir
Ritdómar (bls. 17-20)
„Ekkert peð“ – ritdómur um bók Olgu Guðrúnar Árnadóttur Peð á plánetunni Jörð sem kom út hjá Máli og menningu 1995.
„Inn í drauminn“ – ritdómur um bók Vigdísar Grímsdóttur Gauti vinur minn sem kom út hjá Iðunni 1996.

Kristín Birgisdóttir
„Maður freistast nú alltaf til að fara út í tilraunastarfsemi ... viðtal við Pétur Eggerz um
Möguleikhúsið og viðhorf til leiklistar fyrir börn á Íslandi.“ (bls. 21-25)
Pétur ræðir vítt og breitt um leikhúslífið, vandamál að fá styrki og fjármagn. Hann nefnir erfiðleikana við að semja fyrir börn, hvað þau vilja sjá og heyra. Í lok viðtals er listi yfir helstu verkefni Möguleikhússins frá upphafi. Viðtalið tók Kristín Birgisdóttir.

Helga Einarsdóttir
„Til hamingju með afmælið, Astrid Lindgren!“
Hér fer Helga fáeinum orðum um einn frægasta barnabókahöfund okkar tíma, hina sænsku Astrid Lindgren. Hún segir frá upphafi ferils hennar og einnig getur Helga um þegar Astrid fékk H.C. Andersen verðlaunin.

Sigríður Matthíasdóttir
„Merkilegasta fólkið“ viðtal við Sigríði Matthíasdóttur barnabókavörð á Selfossi. (bls. 28-31)
Sigríður skýrir þar verkefnið Sumarlestur þar sem börn eru hvött til að lesa í sumarleyfum sínum. Einnig ræðir hún um sögustundir fyrir börnin. Hún svarar einnig spurningunni hvort lesið sé almennt fyrir börn á Selfossi og segir það svo vera.

Almanakið (bls. 32)
Hér eru taldir upp væntanlegir viðburðir sem tengjast börnum og menningu um allan heim. Almanakið nær yfir árið 1998.

(Yfirlitið gerði Brynja Baldursdóttir)

 

 

 

Næsta blað

Til að skoða næsta blað á eftir þessu, 1. tbl. 1998, smelltu hér.

 

 

 

 

IBBY á Íslandi - Vefmeistari: Anna Heiða Pálsdóttir