Undirbúningsfundur Samtaka um Barnamenningarstofnun
Á undanförnum árum hefur hugur fólks beinst í æ ríkari mæli að eins konar miðstöðvum eða stofnunum þar sem hægt væri að leita sér upplýsinga um barnabækur eða barnamenningu yfirleitt. Þetta áhugamál hefur verið rætt víða á Íslandi, sérstaklega eftir að hinar Norðurlandaþjóðirnar hafa hver á eftir annarri onað alls konar stofnanir og „hús“ sem hlúa að barnamenningu.
Félagar í Íslandsdeild IBBY hafa ekki verið hér undanskildir - enda hefur stofnun af þessu tagi lengi verið á draumalista IBBY á Íslandi.
Að frumkvæði Sigrúnar Klöru Hannesdóttur, núverandi landsbókavarðar, hittist hópur af fólki sem hefur sýnt áhuga á undirbúa stofnun samtaka um Barnamenningarstofnun. félagar þann 10. september sl. heima hjá henni til að
Þar voru eftirfarandi fulltrúar, auk Sigrúnar Klöru: fulltrúar frá SÍUNG sem er félag barnabókahöfunda, til dæmis Kristín Steinsdóttir, Kristín Helga Gunnarsdóttir, Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson og Áslaug Jónsdóttir. Þar voru nokkrar rannsóknarmanneskjur, Þuríður Jóhannsdóttir og Silja Aðalsteinsdóttir, og svo bókaverðir, Þorbjörg og Kristín Viðarsdóttir og Sigrún Kristjánsdóttir af Borgarbókasafninu. Fulltrúar IBBY voru Anna Heiða Pálsdóttir, Iðunn Steinsdóttir, Guðlaug Ebba Ólafsdóttir og Guðlaug Richter.
Þessir fulltrúar ræddu ýmsar hugmyndir sem að sumu leyti voru byggðar á hliðstæðum stofnunum á hinum Norðurlöndunum.
< Tilbaka á aðalsíðu um Barnamenningarstofnun |