Aðrar ráðstefnur

Innanlands

Yfirlit
Bókakaffi
Gerðubergs-ráðstefna
Aðrar ráðstefnur
Barnamenningar-
stofnun
  Yfirlit
  Undirbún.fundur:
  Fundur 10.9.02
  Stofnfélagar
  Stefnuskrá
  Stofnfundur:
  Dagskrá
  Fundargerð
  Ávarp Ragnh.
  Ávarp Önnu H.
  Lög um stofn.
  Aðgerðir 2003
  Framh.fundur:
  Dagskrá 23.9.04
  Fundargerð
  Skýrsla Sig.Valg.
  Annað:
  Málþing 2005
Íslensku barnabóka-verðlaunin
Vorvindar IBBY

Barnamenningarstofnun - Stefnuskrá
Samin eftir undirbúningsfund 10. september 2002

Nokkrir einstaklingar og félagasamtök, sem hafa að sjónarmiði að efla barnamenningu og vekja meiri umræðu um barnabókmenntir, hafa um árabil stefnt að því að setja á laggirnar sérstaka Barnamenningarstofnun. Nú hefur verið ákveðið að safna þessum aðilum saman og halda stofnfund á Degi íslenskrar tungu þann 16. nóvember nk.

Stefnt er að því að stofnunin verði með tímanum til húsa innan Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns. Tilgangur hennar er að stuðla að bestu skilyrðum fyrir ritun, miðlun og rannsóknir á bókmenntum fyrir börn og unglinga og gera barnabókina sýnilegri innan um aðrar tegundir bókmennta.

Stofnunin mun leggja sig fram við:

  • að huga að og skrá barnabókakost þann sem til er í Landsbókasafni. Safnið geymir allar barnabækur sem komið hafa út á Íslandi, auk þýddra bóka og bóka á frummáli (aðallega hinum Norðurlandamálunum). Þar eru einnig geymdar myndabækur og barnablöð, íslenskar og erlendar fræðibækur um barnabókmenntir og íslensk og erlend tímarit um barnabækur og barnamenningu, sem verða skráð í Barnamenningarstofnun. Stefnt verður að því að safna saman námsbókum fyrir börn og vísindaritum um börn og menningu, barnasálfræði og uppeldisfræði.
  • að efla rannsóknir og kennslu á barnabókmenntum út frá fagurfræðilegu, félagslegu, sögulegu og margmiðlunartengdu sjónarmiði. Stofnunin mun berjast fyrir viðurkenningu rannsókna á sviði barnabókmennta til jafns við aðrar fræðigreinar. Samvinna við hliðstæðar stofnanir, m.a. í tengslum við Háskóla Íslands og Landsbókasafn, auk erlendra barnabókastofnana, er æskileg. Stofnunin tekur þátt í alþjóðlegum rannsóknarverkefnum og aðstoðar aðrar stofnanir og félagasamtök við upplýsingaöflun. Háskólanemar sem vinna að verkefni varðandi barnabækur munu geta unnið innan stofnunarinnar og notað þau fræðigögn sem þar eru geymd. Sóst mun eftir samvinnu við fleiri menntastofnanir varðandi rannsóknir.
  • miðla upplýsingum um barnabókmenntir. Barnabókastofnun skal miðla þekkingu á sviði barnabókmennta, þ.e. safna til sín upplýsingum um niðurstöður íslenskra og erlendra rannsókna og kennsluverkefna, auk þeirra verkefna sem stofnunin hefur tekið að sér, og miðla þeim til annarra. Stefnt skal að samstarfi við skóla og bókasöfn varðandi þessa upplýsingamiðlun. Miðlunin felur í sér:
    • dagleg samskipti við þá sem leita upplýsinga um barnabókmenntir og barnamenningu
    • fyrirlestra, sýningahald, fræðslufundi, ráðstefnur og aðrar uppákomur, innan og utan stofnunarinnar, svo og aðstoð við sérstaka hópa, m.a. rithöfunda, bókaútgefendur, bóksala, gagnrýnendur, foreldra, kennara, uppeldisfræðinga og bókaverði.

Við hvetjum alla unnendur barnamenningar og barnabóka að skrá sig í stofnhópinn. Vinsamlegast sendið tölvupóst fyrir 1. nóvember 2002 til Önnu Heiðu Pálsdóttur á ah@mmedia.is með nafni, tölvupóstfangi og kennitölu. Formlegur stofnfundur Samtaka um Barnamenningarstofnun verður haldinn á Degi íslenskrar tungu þann 16. nóvember 2002 og verður hann nánar auglýstur síðar.

 

 

 

< Tilbaka á aðalsíðu um Barnamenningarstofnun

Barnabókastofnun
Til þess að skoða sænsku barnabókastofnunia, sem er einstök í sinni röð, smelltu hér.


 

 

IBBY á Íslandi - Vefmeistari: Anna Heiða Pálsdóttir