Málþing um barnamenningu í Gerðubergi
Laugardaginn 5. mars 2005
„Hvar er barnamenningin?“
Aðalmarkmið ráðstefnunnar er að efla barnamenningu í landinu, m.a. á þann hátt að ráðstefnan stuðli að auknum tengslum milli aðila sem vinna að barnamenningu á mismunandi sviðum og út frá mismunandi forsendum.
Það er nokkuð einkennandi fyrir stöðu barnamenningar hér á landi að hún er alls staðar en þó hvergi. Mjög lítið hefur verið gert af því að stýra barnamenningu með mótun stefnu eða laga- eða reglugerðarsetningu. Barnamenning blómstrar víða en það er vegna frumkvæðis og áhuga einstaklinga og einstakra stofnana.
Ríkisstofnanir sem vinna á sérhæfðum sviðum og hafa sérfræðingum á að skipa, svo sem lista- og menningarsöfn, vinna að barnamenningarverkefnum. Stofnanir sveitarfélaga sem sinna grunnþjónustu við börn og unglinga vinna líka að slíkum verkefnum, svo og einkaaðilar. Þessir aðilar hafa ólíkar forsendur og mismunandi áherslur. Það liggur í augum uppi að aukin samvinna þeirra er mikilvægur þáttur til eflingar barnamenningar í landinu. Hver aðili fyrir sig getur lagt fram mikilvægan skerf, en vegna þess hversu sjálfsprottin barnamenningin er og hversu lítt henni er stýrt að ofan, skortir farveg fyrir samstarfið.
Markmið málþingsins eru:
- Að kynna Barnamenningarsjóð og hugtakið barnamenning.
- Að efla barnamenningu í landinu.
- Að vekja athygli á skapandi vinnu með börnum, fyrir börn og þeirra eigin menningu, sem fram fer á landinu er gæti orðið uppspretta að nýjum hugmyndum.
- Að koma fólki saman í hugarflæði sem síðan myndi þróa og vinna að verkefnum, jafnt einkaaðilum og fólki í starfi hjá opinberum aðilum.
Málþingið verður haldið laugardaginn 5. mars frá kl. 9-16.
Skráning: gudrun.dis.jonatansdottir@reykjavik.is eða 575 7706.
Ráðstefnugjald: Kr. 3.500.- Greitt við skráningu inn á reikning Gerðubergs. Kt. 410289-1489. Bankaupplýsingar: 1150-26-54715. Innifalið: Ráðstefnugögn, léttur hádegisverður og kaffi.
Afhending skráningargagna fara fram milli 8:30 og 9:00.
Fyrir hádegi verða haldnir fyrirlestrar og eftir hádegi verða opnaðar fjórar málstofur.
< Tilbaka á aðalsíðu um Barnamenningarstofnun |