|
LÖG SAMTAKA UM BARNAMENNINGARSTOFNUN
Samþykkt á stofnfundi 16. nóvember 2002
1. Nafn
Félagið heitir Samtök um Barnamenningarstofnun og er samstarfsvettvangur
þeirra sem vilja setja á stofn Barnamenningarstofnun á Íslandi. Heimili og
varnarþing er í Reykjavík.
2. Markmið
Markmið Samtakanna er að koma á laggirnar Barnamenningarstofnun sem hafi
eftirfarandi hlutverk:
a) Að safna og auðvelda aðgang að barnamenningarefni.
b) Að efla rannsóknir á og fræðslu um barnamenningu á Íslandi.
c) Að miðla upplýsingum um barnamenningu á Íslandi og stuðla að
tengslum við sambærilegar stofnanir erlendis.
3. Aðild
Allir sem áhuga hafa á framgangi málsins geta gerst aðilar að félaginu.
4. Stjórn
Stjórn Samtaka um Barnamenningarstofnun skipa þrír menn og einn til vara.
Stjórn er kosin til tveggja ára í senn á aðalfundi samtakanna sem skal
haldinn í apríl ár hvert og boðaður með minnst tveggja vikna fyrirvara. Stjórnin
skiptir með sér verkum
5. Verksvið stjórnar
Verksvið stjórnar:
a) Að marka stefnu samtakanna og vinna áætlun um hvernig standa
skuli að stofnun Barnamenningarstofnunar.
b) Að skipa nefndir til að sinna sérstökum verkefnum.
c) Að fara með málefni félagsins milli aðalfunda í samræmi við lög
og samþykktir þess.
6. Lagabreytingar
Breytingartillögur á lögum félagsins má bera fram á aðalfundi og skulu þær
hafa borist stjórn fyrir 1. mars ár hvert.
7. Félagsslit
Félaginu má slíta á aðalfundi ef markmiði þess er náð og /eða 2/3
fundarmanna samþykkja. Eignir félagsins skulu þá renna til þess málefnis sem
stjórn ákveður,
8. Ákvæði til bráðabirgða
Stofnfundur Samtaka um Barnamenningarstofnun kýs þriggja manna stjórn og
einn til vara og situr stjórnin fram að fyrsta aðalfundi félagsins.
< Tilbaka á aðalsíðu um Barnamenningarstofnun |
Barnabókastofnun
Til þess að skoða sænsku barnabókastofnunia, sem er einstök í sinni röð, smelltu hér.
|
|