Aðrar ráðstefnur

Innanlands

Yfirlit
Bókakaffi
Gerðubergs-ráðstefna
Aðrar ráðstefnur
Barnamenningar-
stofnun
  Yfirlit
  Undirbún.fundur:
  Fundur 10.9.02
  Stofnfélagar
  Stefnuskrá
  Stofnfundur:
  Dagskrá
  Fundargerð
  Ávarp Ragnh.
  Ávarp Önnu H.
  Lög um stofn.
  Aðgerðir 2003
  Framh.fundur:
  Dagskrá 23.9.04
  Fundargerð
  Skýrsla Sig.Valg.
  Annað:
  Málþing 2005
Íslensku barnabóka-verðlaunin
Vorvindar IBBY

 

Fundargerð stofnunar Samtaka um Barnamenningarstofnun
í Þjóðarbókhlöðunni 16. nóvember
á Degi íslenskrar tungu, 2002 kl. 14.30

Samkoman var sett af Aðalsteini Ásberg Sigurðssyni en hann var tilnefndur fundarstjóri. Aðalsteinn bauð menn velkomna og stakk upp á Kristínu Steinsdóttur sem ritara. Var það samþykkt.

Diljá Helga Erludóttir 7 ára lék næst lag á fiðlu en hún er nemandi í Ártúnsskóla og Tónlistarskóla Reykjavíkur.

Þá ávarpaði Ragnheiður Gestsdóttir rithöfundur fundinn.

(»Skoða ávarp Ragnheiðar Gestsdóttur.)

Að loknu ávarpi RG röppuðu þrjár ungar stúlkur frumsamið ljóð sem þær kynntu ekki. Þær heita Alma Pálmadóttir, Hlín Magnúsdóttir og Steinunn Lilja Heiðarsdóttir.

Þá var komið að dr. Önnu Heiðu Pálsdóttur að segja frá fyrirhugaðri Barnamenningarstofnun. Bauð hún fundarmenn velkomna og óskaði mönnum til hamingju með Dag íslenskrar tungu. Hún sagði m.a.:

(»Skoða ávarp Önnu Heiðu.)

Næst las AH drög að lögum. Sagði hún að stofnfélögum hafi nú þegar gefist kostur á að bera upp athugasemdir og að óskað væri eftir athugasemdum á fundinum ef einhverjar væru.

(»Skoða drög að lögum um Barnamenningarstofnun.)

Stungið var upp á Önnu Heiðu Pálsdóttur, Guðlaugu Richter og Ragnheiði Gestsdóttur í bráðabirgðastjórn og Ingibjörgu Magnúsdóttur til vara.

Að lokum sungu og spiluðu Anna Pálína Árnadóttir, Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson og Álfgrímur Aðalsteinsson tvö lög.

Fleira gerðist ekki. Fundi slitið. Fundargestir voru nær fimmtíu talsins.

Kristín Steinsdóttir, fundarritari

< Tilbaka á aðalsíðu um Barnamenningarstofnun

Barnabókastofnun
Til þess að skoða sænsku barnabókastofnunia, sem er einstök í sinni röð, smelltu hér.


 

 

IBBY á Íslandi - Vefmeistari: Anna Heiða Pálsdóttir