Aðrar ráðstefnur

Innanlands

Yfirlit
Bókakaffi
Gerðubergs-ráðstefna
Aðrar ráðstefnur
Barnamenningar-
stofnun
  Yfirlit
  Undirbún.fundur:
  Fundur 10.9.02
  Stofnfélagar
  Stefnuskrá
  Stofnfundur:
  Dagskrá
  Fundargerð
  Ávarp Ragnh.
  Ávarp Önnu H.
  Lög um stofn.
  Aðgerðir 2003
  Framh.fundur:
  Dagskrá 23.9.04
  Fundargerð
  Skýrsla Sig.Valg.
  Annað:
  Málþing 2005
Íslensku barnabóka-verðlaunin
Vorvindar IBBY

 

Ávarp á stofnfundi Samtaka um barnamenningarstofnun
Á Degi íslenskrar tungu 16. nóvember 2002
Anna Heiða Pálsdóttir, PhD


Kæru áheyrendur.

Mig langar að byrja á því að bjóða ykkur öll velkomin hingað á Degi íslenskrar tungu – og óska ykkur til hamingju með daginn.

Í fjölmörg ár hefur Sigrún Klara Hannesdóttir, núverandi landsbókavörður, gengið með þann draum í maganum að sett yrði á stofn sértök Barnabókastofnun sem héldi utan um, styrkti og efldi rannsóknir á sviði barnabóka. Þennan draum hefur hún margoft nefnt í gegnum árin, bæði meðal kollega í háskólanum, félaga í bókasafnsfræðinni og svo á opinberum vettvangi.

Margir aðrir sem áhuga hafa á barnabókum og barnamenningu hafa líka, hver á sinn hátt, verið að láta sig dreyma um að einn daginn yrði sett á laggirnar stofnun sem áhugafólk gæti leitað til og gengið að upplýsingum og efni um barnamenningu.

Sumir hafa kynnst þannig stofnunum erlendis, t.d. á hinum Norðurlöndunum þar sem hafa settar hafa verið upp barnabókastofnanir, oft í tengslum við háskóla, kennaraháskóla og bókasöfn.

Í Kaupmannahöfn er til dæmis Center for Börnelitteratur sem opnaði haustið 1998. Hlutverk þess er að „skapa bestu hugsanlegu skilyrði fyrir framsetningu og miðlun rannsókna í barna- og unglingabókmenntum” eins og segir í tillögunni sem samtök um þá stofnun sendu danska menntamálaráðuneytinu 1998. Torben Weinreich, prófessor, hefur stýrt þeirri stofnun með ágætu starfsfólki, m.a. nokkrum doktorsnemum í barnabókmenntum.

Í Svíþjóð er Svenska barnboksinstituttet sem ég heimsótti nú í vor á vegum IBBY. Þar er mikill bókakostur og þar er að finna allar barnabækur sem hafa verið gefnar út í Svíþjóð. Einnig má nefna Norsk barneboksinstitutt og Finlandsk Barnboksinstitut . Af öðrum stöðum víða um heim er einna þekktust Institut Charles Perrault í París.

Við í IBBY á Íslandi höfum gengið með það í maganum að koma upp stofnun á borð við þessar og skrifuðum til dæmis Reykjavíkurborg þegar Borgarbókasafnið í Þingholtunum flutti niður á hafnarbakka. Við bárum fram þá tillögu að húsið væri nýtt sem Barnamenningarhús og buðumst til að vinna að því verkefni með borginni ef hægt væri. En því erindi var neitað og húsið selt til annarra verkefna.

Ég veit að margir hér í salnum hafa á einhvern svipaðan hátt verið með frjóar hugmyndir um barnabókastofnun eða barnamenningarstofnun.

•  Hér eru bókaverðir sem vinna með börn og bækur bæði í bókasöfnum og utan þeirra.

•  Hér eru rithöfundar sem skrifa fyrir börn og unglinga.

•  Hér eru manneskjur sem stunda rannsóknir á barnabókum og barnamenningu.

•  Hér eru kennarar sem miðla bókmenntaáhuga til ungu kynslóðarinnar og styðja við bakið á lestri þeirra.

•  Hér er fólk sem kann að meta góðar bækur fyrir börn og unglinga og veit að auknar rannsóknir á barnabókum efla stöðu þeirra innan bókmenntaheimsins og hvetur til stöðugs gæðaeftirlits á lestrarefni barna.

•  Hér er fólk sem á einhvern annan hátt vinnur að barnamenningu hvort sem er á vinnustað eða utan hans.

Hvaðan sem við komum eigum við öll það sameiginlegt að unna börnum og við viljum huga að andlegri velferð þeirra. Við þekkjum hversu áhrifamiklar barnabækur eru, og við viljum auka veg þessa bókmenntageira.

Að frumkvæði Sigrúnar Klöru Hannesdóttur hittust nokkrir félagar þann 10. september sl. heima hjá henni til að undirbúa stofnun þessara samtaka.

Þar voru fulltrúar frá SÍUNG sem er félag barnabókahöfunda, til dæmis Kristín Steinsdóttir, Kristín Helga Gunnarsdóttir, Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson og Áslaug Jónsdóttir. Þar voru nokkrar rannsóknarmanneskjur, Þuríður Jóhannsdóttir og Silja Aðalsteinsdóttir, og svo bókaverðir, Þorbjörg og Kristín Viðarsdóttir og Sigrún Kristjánsdóttir af Borgarbókasafninu.

Svo vorum við Iðunn Steinsdóttir, Guðlaug Ebba Ólafsdóttir og Guðlaug Richter frá IBBY á Íslandi.

Við ræddum þar ýmsar hugmyndir sem að sumu leyti voru byggðar á hliðstæðum stofnunum á hinum Norðurlöndunum.

Þetta var m.a. ákveðið:

Stefnt yrði að því að stofnunin verði með tímanum til húsa innan Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns. Tilgangur hennar skyldi vera að stuðla að bestu skilyrðum fyrir ritun, miðlun og rannsóknir á bókmenntum fyrir börn og unglinga og gera barnabókina sýnilegri innan um aðrar tegundir bókmennta.

Stofnunin myndi leggja sig fram við:

1) Að huga að og skrá barnabókakost þann sem til er í Landsbókasafni. Safnið geymir allar barnabækur sem komið hafa út á Íslandi, auk þýddra bóka og bóka á frummáli. Hér eru einnig geymdar myndabækur og barnablöð, íslenskar og erlendar fræðibækur um barnabókmenntir og íslensk og erlend tímarit um barnabækur og barnamenningu, sem verða skráð í Barnamenningarstofnun. Stefnt yrði að því að safna saman námsbókum fyrir börn og vísindaritum um börn og menningu, barnasálfræði og uppeldisfræði.

2) Í öðru lagi var ákveðið að stofnunin skyldi efla rannsóknir og kennslu á barnabókmenntum út frá fagurfræðilegu, félagslegu, sögulegu og margmiðlunartengdu sjónarmiði. Stofnunin skyldi berjast fyrir viðurkenningu rannsókna á sviði barnabókmennta til jafns við aðrar fræðigreinar. Samvinna við hliðstæðar stofnanir, m.a. í tengslum við Háskóla Íslands og Landsbókasafn, auk erlendra barnabókastofnana, væri æskileg. Stofnunin tæki þátt í alþjóðlegum rannsóknarverkefnum og aðstoðaði aðrar stofnanir og félagasamtök við upplýsingaöflun. Háskólanemar sem vinna að verkefni varðandi barnabækur myndu geta unnið innan stofnunarinnar og notað þau fræðigögn sem þar eru geymd. Sóst myndi eftir samvinnu við fleiri menntastofnanir varðandi rannsóknir.

3) Í þriðja lagi ætti stofnunin að miðla upplýsingum um barnabókmenntir. Hún skyldi miðla þekkingu á sviði barnabókmennta, þ.e. safna til sín upplýsingum um niðurstöður íslenskra og erlendra rannsókna og kennsluverkefna, auk þeirra verkefna sem stofnunin hefði tekið að sér, og miðla þeim til annarra. Stefnt skyldi að samstarfi við skóla og bókasöfn varðandi þessa upplýsingamiðlun. Miðlunin myndi fela í sér:

•  dagleg samskipti við þá sem leita upplýsinga um barnabókmenntir og barnamenningu

•  fyrirlestra, sýningahald, fræðslufundi, ráðstefnur og aðrar uppákomur, innan og utan stofnunarinnar, svo og aðstoð við sérstaka hópa, m.a. rithöfunda, bókaútgefendur, bóksala, gagnrýnendur, foreldra, kennara, uppeldisfræðinga og bókaverði.

Þessi stefnuskrá okkar var svo borin fram á barnabókaráðstefnu sem var haldin hér í Þjóðarbókhlöðu í september, þegar Maureen Nimon og Jean Webb komu til að halda hér fyrirlestra. Þar var viðstöddum gefinn kostur á að skrá sig í stofnhópinn. Síðan þá hafa bæst við fleiri og fleiri og stofnfélagar eru nú orðnir um 60 talsins. Í dag gefst fleirum kostur á að skrá sig, listi liggur frammi. Margir stofnfélagar eru úti á landi og sumir erlendis (eins og Sigrún Klara), og sumir áttu ekki heimangengt en teljast þó allir gildir stofnfélagar.

Í því að vera stofnfélagi felst engin skuldbinding, ekkert félagsgjald er rukkað. Við höfum enga stofnun enn og köllum okkur bara Samtök um Barnamenningarstofnun þar til hún er formlega komin á laggirnar. Eiginlega höfum við fyrirmynd þar sem Samtök um tónlistarhús eru.

Hér í húsi er Kvennasögusafn en það var sett á laggirnar þó nokkru áður en stofnunin sjálf opnaði formlega.

Ákveðið var að stofna Samtök um Barnamenningarstofnun hér í húsi á Degi íslenskrar tungu. Við ákváðum að stofnunin skyldi heita BARNAMENNINGARstofnun en ekki barna bóka stofnun því við vildum ekki láta neinn geira barnamenningar vera undanskilinn, þar á meðal á sviði tölvutækni og netmenningar, tónlistar, myndbanda o.m.fl. Stelpurnar sem röppuðu hér áðan ættu að sýna hversu opið hugtakið er.

VONIR: Við erum að leita leiða til þess að hægt verði að ráða starfsmann. Eina ljónið í veginum er að eins og aðrir hlutir kostar að halda úti starfsmanni. Við erum að leita að fjármagni í ýmsum menningarsjóðum.

Næst ætla ég að lesa upp drög að lögum sem Sigrún Klara skráði fyrir okkur. Stofnfélögum hefur gefist kostur á að bera upp athugasemdir.

Anna Heiða Pálsdóttir

< Tilbaka á aðalsíðu um Barnamenningarstofnun

Barnabókastofnun
Til þess að skoða sænsku barnabókastofnunia, sem er einstök í sinni röð, smelltu hér.


 

 

IBBY á Íslandi - Vefmeistari: Anna Heiða Pálsdóttir